Ritþjálfarinn er al-íslenskt forrit sem er hannað og sett saman af fjórum
ungum piltum á Ísafirði; þremur 16 ára og einum 15 ára. Þeir eru Birgir Þór Halldórsson, Friðþjófur Þorsteinsson, Gylfi Ólafsson og Magni
Hreinn Jónsson og hafa þeir starfað saman í um eitt og hálft ár. Ritþjálfarinn
þeirra stærsta verkefni til þessa og hefur Grunnskólinn á Ísafirði notað það um
nokkuð skeið og hefur það gefið góða raun þar. Hafa piltanir þá skapað nokkur
önnur forrit í gamni sínu; sér til dægrastyttingar.